Mynd með frétt06. feb. 2012

Dagur leikskólans

Haldið var á landsvísu í fimmta sinn upp á „dag leikskólans“ sem bar upp á mánudaginn 6.febrúar. En 6.febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.... [ nánar ]
Mynd með frétt27. jan. 2012

Þorri blótaður

Að venju var þorri blótaður í Lundabóli á sjálfan bóndadaginn. Hluti af börnum og starfsfólki mættu til blótsins í þjóðlegum klæðum s.s. lopapeysum og var Katrín leikskólastjóri í þjóðbúningi kvenna (upphlut). Börn og starfsfólk komu saman í sal leikskólans þar sem sungið var og stiginn dans eftir þjóðlegri tónlist.... [ nánar ]
Mynd með frétt28. des. 2011

Heimsókn á Byggðasafn Hafnarfjarðar

Á köldum vetrardegi var lagt af stað ásamt elstu börnum Lundabóls með strætisvagni til Hafnarfjarðar Ferðinni var heitið í Sívertsenhúsið til að fræðast um jólin eins og þau voru hjá borgarastéttinni í gamla daga. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. des. 2011

Aðventukaffi foreldra og barna

Að venju var aðventukaffi fyrir börn og foreldra að morgni dags í desember. Boðið var upp á heitt súkkulaði með rjóma ásamt piparkökum. Hluta af piparkökunum höfðu börnin bakað eða skreytt með aðstoð starfsmanna.... [ nánar ]
Mynd með frétt14. des. 2011

Jólaball

Börn og starfsfólk mættu í sínum betri fötum í skólann í morgun því komið var að árlegu jólaballi. Dansað var kringum jólatréð og sungin hefðbundin jólalög. Tveir jólasveinar komu í heimsókn, þeir kjötkrókur og Hurðaskellir. ... [ nánar ]
Mynd með frétt14. des. 2011

Piparkökumálun foreldra og barna

Árleg piparkökumálun foreldrafélags Lundabóls fór fram seinnipart mánudags. Öll börn, fyrir utan þau sem voru lasin mættu ásamt fjölskyldum sínum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. des. 2011

Dagur íslenskrar tungu

Að venju var haldið upp á dag íslenskrar tungu í leikskólanum. Börn og starfsfólk komu saman á sal og sungu lagið . „ Á íslensku má alltaf finna svar“, en það lag höfum við helgað degi íslenskrar tungu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. nóv. 2011

Brúum bilið – Heimsókn í Hofsstaðaskóla

Væntanleg grunnskólabörn fóru í fyrstu heimsóknina á þessu skólaári í Hofsstaðaskóla. En heimsóknin er liður samstarfi skólanna og er ætluð til þess að brúa bilið á milli leik-og grunnskóla. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóv. 2011

Höfðingleg gjöf

Nýlega barst leikskólanum höfðingleg gjöf frá foreldrum eins leikskólabarnsins. Það var framburðarefnið „ Lærum og leikum með hljóðin“ eftir Bryndísi Guðmundsdóttur, talmeinafræðing. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóv. 2011

Vetrarfagnaður - Náttfataball

Í morgun fögnuðu börn og starfsfólks Lundabóls vetrarkomu með náttfataballi í sal skólans. Börnunum finnst alltaf skemmtileg tilbreyting að mæta í náttfötunum í skólann og hafa ekki síður gaman af því að sjá starfsfólkið í náttfötum.... [ nánar ]
Mynd með frétt17. okt. 2011

19 ára afmæli Lundabóls

Leikskólinn var 19 ára laugardaginn 15.október, af því tilefni gerðu börn og starfsfólk sér dagamun á föstudeginum 14.október. Allir söfnuðust saman í salnum, sungin var afmælissöngurinn fyrir Lundaból og einnig fyrir Helgu á Lerkinu sem átti fjögurra ára afmæli. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. okt. 2011

Afmæli Sólveigar Birtu

Í tilefni af 5 ára afmæli Sólveigar Birtu á Lerkinu var öllum börnunum ásamt kennurum boðið heim til Sólveigar , en hún býr í göngufæri við Lundaból. ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. okt. 2011

ADHD fræðsla

Starfsfólk Lundabóls, leikskólans Sunnuhvols, ásamt tveimur öðrum gestum fengu fræðslu um ADHD (athyglisbrestur með ofvirkni). Fræðslan fór fram í sal Lundabóls og það voru þær Dr. Urður Njarðvík og Þórdís Bragadóttir, sálfræðingur sem voru með sitthvort erindið. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. sep. 2011

Ferðir í Þjóðleikhúsið

Börn fædd 2006 og 2007 fóru í síðastliðinni viku í Þjóðleikhúsið að sjá ævintýrið um Hlina kóngsson. Helmingur barnanna fór á miðvikudag og helmingur á föstudag. Hlini kóngsson var hremmdur af skessu sem var skotin í honum en það var ekki gagnkvæmt. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. ágú. 2011

Uppskeran heim í hús

Það ríkti mikil gleði og ánægja þegar börn og starfsfólk lögðu af stað í síðustu ferðina í skólagarðana á þessu sumri. Ætlunin var að sækja restina af uppskerunni sem aðallega voru kartöflur. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. ágú. 2011

Sumri hallar

Nú er sumri tekið að halla og senn hefst nýtt skólaár. Sumarið gekk vel og var tíminn vel nýttur til þess að þrífa, laga til og vinna í haginn fyrir veturinn. ... [ nánar ]
21. ágú. 2011

Boðuðu verkfalli aflýst - leikskólinn opinn

Væntanlega hefur það ekki farið fram hjá neinum að samningar náðust í kjaradeilu leikskólakennara í gær, laugardag. Leikskólinn verður því opinn mánudaginn 22. ágúst samkvæmt venju.... [ nánar ]
Mynd með frétt24. jún. 2011

Gróðursetning í skólagörðum

Líkt og undanfarin ár eru börn og starfsfólk með skika til ræktunar í skólagörðum bæjarins. Börn og starfsfólk hjálpuðust að við að setja niður allskyns grænmeti sem þau ætla í sameiningu að hjálpast að við að hirða um í sumar.... [ nánar ]
Mynd með frétt24. jún. 2011

Sumarfagnaður Foreldrafélagsins

Fimmtudaginn 9. júní s.l. hélt Foreldrafélag Lundabóls sumarfagnað á leikskólalóðinni. Í boði voru grillaðar pylsur, safi og muffins. Til skemmtunar fyrir börnin var boðið upp á andlitsmálun og hoppukastala. ... [ nánar ]
Mynd með frétt01. jún. 2011

Ylströndin í Nautólsvík

Fjórtán nemendur af tuttugu fóru í útskriftarferð á Ylströndina í Nauthólfsvík með strætó frá Lundabóli í dag. Þegar á ströndina var komið var hafist handa við að læra nýja leiki, en hægt er að fá lánuð leikföng og leiktæki í þjónustumiðstöð ÍTR á svæðinu.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. jún. 2011

Börnin kveðja leikskólann

Það var óvenju stór hópur nemenda eða alls 20 börn, sem útskrifuðust við hátíðlega athöfn að viðstöddu fjölmenni í sal skólans. Við athöfnina sungu börnin, leikskólastjóri tók til máls og fyrir hönd nemenda talaði Sigrún Ása Sigmarsdóttir. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. maí 2011

Íþróttadagur Lundabóls

Íþróttadagur Lundabóls var haldinn þriðjudaginn 10.maí síðastliðinn. Börnin af Lerkinu og Laufinu fóru ásamt kennurum í heimsókn í fimleikahúsið í Ásgarði, þar sem þrír fimleikaþjálfarar frá Stjörnunni tóku á móti börnunum.... [ nánar ]
Mynd með frétt23. maí 2011

Grjóteyri í Kjós

Greina mátti gleði og eftirvæntingu hjá börnunum í upphafi árlegrar sveitaferðar. Líkt og síðustu ár var farið að bænum Grjóteyri í Kjós með viðkomu í fjöru á heimleiðinni. Mannskapurinn lét kulda og hryssingslegt veður ekkert á sig fá og skemmti sér hið besta. ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. maí 2011

Er í lagi að ljúga ? (Heimsspeki í Lundabóli)

Verið er að lesa hina sístæðu og vinsælu sögu Guðrúnar Helgadóttur um þá bræður Jón Odd og Jón Bjarna. Kaflinn: Jón Oddur og Jón Bjarni uppgötva sitthvað um sannleikann gaf tilefni til heimspekilegra vangaveltna um sannleiknn.... [ nánar ]
Mynd með frétt04. maí 2011

Opið hús í Lundabóli

„ Opið hús “ verður í Lundabóli laugardaginn 7.maí frá kl. 10:00-12:00. Þá gefst fjölskyldum og öllum þeim sem hafa áhuga, gott tækifæri til að kynna sér leikskólann og skoða afrakstur vetrar starfsins.... [ nánar ]
Mynd með frétt29. apr. 2011

Heimsókn í Hofsstaðaskóla

Tólf börn frá Lundabóli fóru í skólaheimsókn í Hofsstaðaskóla en þau eru öll væntanlegir nememdur þar næsta haust. Eftirvænting var í þessari fjórðu skólaheimsókn vetrarins því nú var komið að því að þau fengju smjörþefinn af þvi hvernig er að vera nemandi í grunnskóla.... [ nánar ]
Mynd með frétt19. apr. 2011

Sumarfagnaður

Að venju fögnuðu börn og starfsfólk hækkandi sól og sumarkomu með náttfataballi í sal skólans. Strax í morgunsárið örlaði á spennu og eftirvæntingu í barnahópnum þegar börn og starfsfólk mættu í náttfötum.... [ nánar ]
Mynd með frétt18. apr. 2011

Starfsfólk á skyndihjálpar námskeiði

Í síðustu viku tók allt starfsfólk Lundabóls þátt í skyndihjálpar námskeiði , þar sem farið var yfir grunnatriðið í skyndihjálp, einkum það sem snýr að börnum. Kennari á námskeiðinu var Vigdís B. Arnardóttir, kennari í Garðaskóla, ásamt aðstoðarmanni. ... [ nánar ]
Mynd með frétt31. mar. 2011

Ömmu og afa kaffi

Góð mæting var á árlegt „ömmu og afa kaffi“ í leikskólanum og gaman að sjá hversu margir gáfu sér tíma til þess að heimsækja okkur. Boðið var upp á kryddbrauð sem bakað var af okkar góða matráði, honum Jóa og því rennt niður með viðeigandi drykkjum.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. mar. 2011

Væntanleg grunnskólabörn heimsækja Hofsstaðaskóla

Skólahópur Lundabóls hélt í sína þriðju heimsókn í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 23. mars. Móttökurnar voru hreint út sagt bæði skemmtilegar, menntandi og nærandi. Í fyrstu var hópnum boðið að vera við generalprufu þar sem sýndur var frumsaminn dans.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. mar. 2011

Brúðuleikhús

Í gær kom snillingurinn Bernd Ogrodnik með brúðuleikhúsið sitt og flutti leikritið Gilitrutt sem byggir á gamalli þjóðsögu, sem eflaust flestir þekkja. Túlkun Bernds var frábær og náði hann að fanga athygli barnanna og segir það sitthvað um verkið og flutninginn. ... [ nánar ]
Mynd með frétt10. mar. 2011

Öskudagsgleði

Það var mikið líf og fjör á öskudag í Lundabóli. Strax í morgunsárið fór að bera á ýmsu furðufólki í skólanum bæði börnum og fullorðnum. Það mátti sjá nokkra supermenn, skærbleikar prinsessur, trúða o.s.frv. ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. mar. 2011

Kynning á aðgerðaáætlun

Skólaþing var haldið í Lundabóli 19.janúar s.l.en það var liður í innleiðingu skólastefnu Garðabæjar 2010-2013. Aðgerðaáætlun og stutt samantekt um þingið var kynnt á fundi Leikskólanefndar í gær. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. feb. 2011

Elstu börnin heimsækja Hofsstaðaskóla

Skólahópur Lundabóls, átján börn, fór í vettvangsferð í Hofsstaðaskóla í góðu veðri en asahláku og vissara var því að að kunna fótum sínum forráð. Þegar komið var í skólann var hópnum boðið á bókasafnið þar sem verðlaunasagan um fílafjölskylduna skemmtilegu ,,Fimm mínútna friður var lesin. ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. feb. 2011

Dagur leikskólans

Í tilefni Dags leikskólans er foreldrum ásamt börnum boðið til morgunverðar í Lundabóli föstudaginn 4.febrúar frá kl. 8:10 - 9:00. Dagur leikskólans er nú haldinn í fjórða sinn og ber upp á sunnudaginn 6.febrúar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt28. jan. 2011

Heiðursstarfsmaður Lundabóls

Sigurborg (Gógó) eins hún er alltaf kölluð lét af störfum í Lundabóli um áramótin. Hún var elsti starfsmaður leikskólans og jafnframt með lengstan starfsaldur eða rúm 18 ár. Það er mikill missir að Gógó sem átti farsælan starfsferil í Lundabóli og einstaklega góð samskipti við börn og fullorðna.... [ nánar ]
Mynd með frétt26. jan. 2011

Þorrablót

Að venju var Þorri blótaður í Lundabóli á bóndadeginum, sem markar upphaf þorra mánaðar. Börn og starfsfólk settu upp heimagerða víkingahjálma, hittust í sal leikskólans þar sem sungin voru ýmis íslensk þjóðlög ásamt þorravísum.... [ nánar ]
Mynd með frétt14. jan. 2011

Skólaþing

Skólaþing verður haldið í Lundabóli miðvikudaginn 19. Janúar kl. 17:15-19:15. Skólaþingið er liður í að innleiða nýja skólastefnu Garðabæjar fyrir árin 2010-2013. Allir skólar í Garðabæ halda skólaþing, bjóða upp á umræður um markmið skólastefnunnar og gefa þannig foreldrum og starfsfólki tækifæri til að hafa áhrif á og móta skólastarfið.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. des. 2010

Ferð í Sívertsenhúsið í Hafnarfirði

Í veðri sem minnti fremur á vorkomu en hávetur var lagt af stað til Hafnarfjarðar ásamt börnum úr „ skólahóp“ Lundabóls í Sívertsenhúsið til að fræðast um jólin eins og þau voru hjá mörgum í gamladaga.... [ nánar ]
Mynd með frétt23. des. 2010

Piparkökumálun Foreldrafélagsins

Það var skemmtileg og notaleg stund sem börn og foreldrar áttu saman eitt síðdegi í desember. En það er orðin árlegur viðburður hjá Foreldrafélaginu að standa fyrir piparkökumálun. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. des. 2010

Jólaball

Í tilefni árlegs jólaballs komu börn og starfsfólk prúðbúin í leikskólann. Að loknum nærandi morgunverði var stutt „jólastund“ á hverri deild, þar sem farandjólasveinar „sögðu frá“ heimsókn sinni til barnanna og nokkur jólalög voru sungin. ... [ nánar ]
Mynd með frétt10. des. 2010

Notaleg stund á aðventu

Árlegt aðventukaffi var haldið í vikunni, hver deild var með sinn dag og hefur það gefist vel. Börn og starfsmenn voru búin að baka piparkökur sem þau buðu foreldrunum ásamt heitu súkkulaði með rjóma. ... [ nánar ]
Mynd með frétt03. des. 2010

Ferðir á Þjóðminjasafnið

Dagana 30.nóvember og 3.desember fóru börnin úr elsta árg. leikskólans í Þjóðminjasafnið. Við tókum strætisvagn, sem börnunum fannst mikil upplifun. Vel var tekið á móti okkur á safninu og margt skemmtilegt og fróðlegt að sjá t.d. gamlar styttur, baðstofu, skautbúning og beinagrindur.... [ nánar ]
Mynd með frétt26. nóv. 2010

" Leikhús í tösku"

Miðvikudaginn 24.nóvember fengum við góða heimsókn. Þórdís Arnljótsdóttir leikari kom með „leikhús í tösku“ og sýndi leikritið „Grýla og jólasveinarnir“ . Börn og starfsfólk sátu spennt þegar sýningin hófst kl. 10:00. ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. nóv. 2010

Fyrsta skólaheimsókn vetrarins

Fimmtudaginn 10. nóvember sl. fóru skólahóparnir af Lerkinu í heimsókn í Hofsstaðaskóla. Lagt var af stað frá Lundabóli og gengið í skólann. Þar tók á móti okkur Arnheiður deildastjóri yngsta stigs, sem er tengiliður Lundabóls og Hofsstaðaskóla. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. nóv. 2010

Ársskýrsla Lundabóls

Ársskýrsla skólaársins 2009-2010 er komin á heimasíðu leikskólans. Skýrsluna má finna undir flipanum um skólann - ársskýrsla.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. okt. 2010

Rýmingaræfing

Verkleg rýmingaræfing v/eldsvoða var á fimmtudaginn í leikskólanum. Allir tóku þátt í henni bæði börn og starfsfólk. Áður en til æfingarinnar kom var búið að aðvara börnin til þess að skapa ekki óþarfa hræðslu meðal þeirra. ... [ nánar ]
Mynd með frétt15. okt. 2010

Slökkviliðið í heimsókn

Nýlega kom slökkviliðið í heimsókn í Lundaból og var með fræðslu um eldvarnir fyrir elsta árgang leikskólans. Slökkviliðsmennirnir ræddu við börnin um eldvarnir, sögðu þeim frá starfi sínu og sýndu þeim ýmsan búnað ásamt myndbandi sem sýnir hvernig bregðast eigi við komi upp eldur.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. okt. 2010

Leikhúsferð í Kúluna

Miðvikudaginn 29. september síðastliðinn fóru elstu börnin í Lundabóli í leikhús. Þetta var Sögustund í Kúlunni sem er á vegum Þjóðleikhússins. Leikritið heitir Karlsson, Lítill, Trítill og fuglarnir. ... [ nánar ]
Mynd með frétt24. sep. 2010

Góð útkoma úr viðhorfskönnunum !

Mat barna á skólastarfinu fór fram í vor og rafræn viðhorfskönnun foreldra fór fram í júní s.l. einnig fór fram í desember 2009 rafræn viðhorfskönnun starfsmanna. Niðurstöður foreldrakönnunar var kynnt fyrir foreldrum á foreldrafundi fyrr í vikunni. ... [ nánar ]
Mynd með frétt03. sep. 2010

Skólastefna Garðabæjar 2010 -2013

Sem gefin var út maí síðastliðnum og tekur til leik-grunn- og tónlistarskóla er komin á heimasíðu Lundabóls. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér stefnuna er bent á flipann - um leikskólann - skólastefna... [ nánar ]
Mynd með frétt31. ágú. 2010

Glaðlegar myndir frá sumrinu

Nú er komið að lokum gamla skólaársins og nýtt skólaár 2010-2011 hefst formlega 1.september. Síðustu myndir skólaársins frá öllum deildum eru komnar inn á myndasvæði heimasíðunnar myndir úr skólastarfinu – skólaárið 2009-2010. ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. ágú. 2010

Uppskeran heim í hús

Eftir töluverða en ánægjulega vinnu um sumarið við að fara í skólagarðana og hlú að grænmetinu, var komið að því skemmtilegasta að sækja uppskeruna. ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. júl. 2010

Ræktað í skólagörðunum

Líkt og undanfarin ár hafa börn- og starfsfólk Lundabóls verið með reit í skólagörðum Garðabæjar. Börn og starfsfólk skiptast á að fara í garðinn a.m.k. einu sinni í viku.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. júl. 2010

Sumarskipulagið í fullum gangi

Til margra ára hefur svokallað „sumarskipulag“ verið tekið upp yfir sumartímann í Lundabóli, nánar tiltekið frá 1.júní – 15.ágúst. Veðráttan ásamt sumarleyfum barna- og starfsfólks kallar á breytta starfssemi og er kærkomið að brjóta upp hefðbundið starf með þessum hætti. ... [ nánar ]
Mynd með frétt09. jún. 2010

Útskrift elstu barna

Í liðinni viku fór fram útskrift elstu barna í Lundabóli (2004 árg.) í sal leikskólans að viðstöddum kennurum, leikskólastjóra og foreldrum.... [ nánar ]
Mynd með frétt04. jún. 2010

Útskriftarferð

Samkvæmt venju fór elstu börn leikskólans í árlega útskriftarferð. Haldið var snemma morguns með strætisvagni í Fjölskyldu – og húsdýragarðinn.Kennarar barnanna þær Ásthildur, Fjóla og Halla voru með í för, ásamt tveimur aðstoðarstúlkum, þeim Ásrúnu og Konný. ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. jún. 2010

Sumarfagnaður Foreldrafélagsins

Sumarfagnaður Foreldrafélags Lundabóls var haldinn í annað sinn í blíðskaparveðri í lóð leikskólans. Boðið var upp á hoppkastala, andlitsmálningu, grillaðar pylsur, heimabakað muffins og drykki. ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. maí 2010

Marel gefur vísindabúnað

Marel afhenti leikskólunum í Garðabæ gjöf í vikunni til eflingar kennslu á sviði raungreina og náttúruvísinda. Alir leikskólarnir níu sem eru starfræktir í Garðabæ fengu afhenta víðsjá og pakka með ýmsum öðrum kennslubúnað. ... [ nánar ]
Mynd með frétt21. maí 2010

Vorferðalag Foreldrafélags Lundabóls

Það var spenna og tilhlökkun í loftinu um morguninn þegar lagt var af stað í árlegt vorferðalag Foreldrafélags Lundabóls. Mikill fjöldi foreldra , systkina og gesta var með í för og taldi hópurinn um 155 manns. ... [ nánar ]
Mynd með frétt03. maí 2010

Opið hús

„Opið hús “var laugardaginn 24.apríl og má segja að hér í Lundabóli hafi það markað upphaf listadaga barna og ungmenna í Garðabæ. Margir góðir gestir sóttu okkur heim og rituðu hundrað og níu manns nafn sitt í gestabókina. ... [ nánar ]
Mynd með frétt30. apr. 2010

Heimsóknir verðandi grunnskólabarna

Á dögunum fóru verðandi 1. bekkingar í skólaheimsóknir í Hofsstaðaskóla og Flataskóla. Þetta var önnur heimsókn okkar í Hofsstaðaskóla og í þetta skiptið tókum við þátt í daglegu skólastarfi með 1. bekk, byrjuðum í leikfimi, fórum svo út í frímínútur, borðuðum nesti og tókum þátt í kennslustund. ... [ nánar ]
Mynd með frétt21. apr. 2010

Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ

Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ eru nú haldnir í fjórða sinn, nánar tiltekið dagana 26. apríl - 1.maí. Þema listadaganna að þessu sinni er ,,leikandi list“ og má túlka það á ýmsa vegu.... [ nánar ]
Mynd með frétt31. mar. 2010

Ömmu og afa kaffi

Það var líf og fjör í leikskólanum þegar hefðbundnu skipulagi var ýtt til hliðar og börnin buðu ömmum sínum og öfum í kaffi og kleinur. Það var mikil gleði og ánægja meðal barnanna og gestanna með þetta fyrirkomulag. Haft var á orði „að það væri nauðsynlegt að staldra aðeins við og taka sér frí í dagsins önn og leika sér svolítið “. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. mar. 2010

Heimsókn í Hofsstaðaskóla

Þau börn sem fara í grunnskóla næsta haust fóru í heimsókn í Hofsstaðaskóla í vikunni. Það var mjög vel tekið á móti okkur og voru allir ánægðir með heimsóknina. Arnheiður, deildarstjóri yngsta stigs, tók á móti okkur ásamt tveimur nemendum úr 6. bekk. ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. mar. 2010

Jibbí ! Það styttist í sumarið

Þá er komið að því að skila inn fyrirhuguðum sumarleyfum barna. Leikskólar Garðabæjar loka ekki yfir sumartímann, en gert ráð fyrir að börnin fari í fjögurra vikna sumarleyfi sem eru án gjalds. Gjaldið fellur niður í júlí mánuði, óháð því hvenær sumarleyfið er tekið. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. mar. 2010

Pétur og úlfurinn

Bernd Ogrodnik brúðuleiklistarmaður mætti með hina bráðskemmtilegu og fallegu sýningu sína „ Pétur og úlfinn “ í Lundaból. Sýningin er byggð á hinni óviðjafnanlegu sögu og tónverki „Pétur og úlfurinn“ eftir Sergei Prokofiev. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. feb. 2010

Öskudagsgleði

Að venju var líf og fjör í Lundabóli á öskudaginn enda stór dagur og mikill spenningur hjá börnunum. Á ferli innan leikskólans voru allskyns furðuverur, prinsar, blómálfar, köngulóarmenn, trúðar, sjóræningjar o.fl.... [ nánar ]
Mynd með frétt12. feb. 2010

Sögustund á bókasafni Garðabæjar

Síðastliðinn þriðjudag fór skólahópur leikskólans í sögustund á bókasafni Garðabæjar. Þar kynnti Anna Ingólfdóttir, rithöfundur, jógakennari og Garðbæingur bók sína Mjallhvítur sem kom út fyrir jólin. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. feb. 2010

Dagur leikskólans

Það var líf og fjör í Lundabóli í morgunsárið, þegar börnum og foreldrum var boðið til morgunverðar í tilefni „Dags leikskólans“ .... [ nánar ]
Mynd með frétt25. jan. 2010

Þorri blótaður í Lundabóli

Að venju var Þorri blótaður í Lundabóli á bóndadaginn, fáni var dreginn að húni, allir skörtuðu víkinga höfuðbúnaði og sumir voru í lopapeysum í tilefni dagsins. ... [ nánar ]
Mynd með frétt14. jan. 2010

Fullt hús prika í Lundabóli

Dagana kringum jól og nýár kepptust börn, starfsfólk og foreldrar Lundabóls við að týna rakettuprik innan bæjarins og nágrannasveitarfélaga. Prikunum var svo skilað samviskusamlega í Leikskólann og úr varð heljarmikið safn, eins og sjá má á myndinni.... [ nánar ]
Mynd með frétt18. des. 2009

Jólaball í Lundabóli

Það ríkti mikil gleði og ánægja á jólaballi Lundabóls sem haldið var í morgun. Börn og starfsfólk sungu og dönsuðu í kringum jólatréð af mikilli innlifun. Tveir eldhressir jólasveinar komu í heimsókn og tóku þátt í gleðinni.... [ nánar ]
Mynd með frétt18. des. 2009

Heimsókn á Byggðasafn Hafnarfjarðar

Þann 9. desember fór elsti árgangur Lundabóls í heimsókn í Byggðasafn Hafnarfjarðar, n.t.t. í Sívertsens-húsið, sem er elsta hús Hafnarfjarðar, byggt á árunum 1803-1805. ... [ nánar ]
Mynd með frétt10. des. 2009

Piparkökumálun Foreldrafélags Lundabóls

Árleg piparkökumálun Foreldrafélags Lundabóls var síðdegis þriðjudaginn 8.desember. Fulltrúar Foreldrafélagsins lögðu mikla vinnu í undirbúning og framkvæmd svo allt gengi sem best og eiga þeir þakkir skildar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt10. des. 2009

Heitt súkkulaði með rjóma á aðventunni

Að venju var foreldrum og börnum boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur á aðventunni. Góð mæting var og notaleg stemning myndaðist á deildunum í náttmyrkrinu og jólaljósunum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. nóv. 2009

Ársskýrsla Lundabóls 2008-2009

Ársskýrsla Lundabóls skólaárið 2008 -2009 er komin á heimasíðu skólans og að þessu sinni prýða hana fjöldi mynda úr skólastarfinu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt06. nóv. 2009

Heimsókn í listasmiðju

Í október fóru elstu börnin á Lerkinu í gamla Hagkaups húsið á Garðatorgi til þess að föndra og skapa eitthvað listrænt, Það sama gerðu börn í öðrum leik-og grunnskólum bæjarins. Hver og einn skóli var með sínar hugmyndir en í þetta sinn bjuggu nemendur í Lundabóli til sprellikarl. ... [ nánar ]
Mynd með frétt03. nóv. 2009

Heimsókn slökkviliðsins

Nýlega kom slökkviliðið í heimsókn í Lundaból og var með fræðslu um eldvarnir fyrir elsta árgang leikskólans. Ásamt þeim mættu sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðanna þau Logi og Glóð. ... [ nánar ]
Mynd með frétt30. okt. 2009

Starfsáætlun og skóladagatal

Samkvæmt fyrirmælum í nýlegum lögum um leikskóla hefur starfsáætlun Lundabóls skólaárið 2009 - 2010 verið lögð fyrir Leikskólanefnd Garðabæjar að fenginni umsögn Foreldraráðs Lundabóls. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. okt. 2009

Danssýning

Danskennslunni hjá Dagný Pétursdóttur danskennara lauk með danssýningu s.l. þriðjudag. Þá var foreldrum boðið að koma og sjá afraksturinn, ásamt því að taka þátt í dansinum með börnunum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt14. okt. 2009

Hvernig er að vera í Lundabóli ?

Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að mat á skólastarfinu fari fram með fjölbreyttari hætti og m.a. með þátttöku barna. Með því viljum við skapa börnunum tækifæri til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt og raddir þeirra fái að heyrast.... [ nánar ]
Mynd með frétt18. sep. 2009

Dans ! Dans !

Danskennsla hefst að nýju í Lundabóli þriðjudaginn 22.september kl. 13:00, kennt verður einu sinni í viku. Líkt og undanfarin ár mun Dagný Björk Pétursdóttir danskennari sjá um dansinn. ... [ nánar ]
Mynd með frétt01. sep. 2009

Viðbragðsáætlun Lundabóls

Búið er að gera viðbragðsáætlun gagnvart Inflúensufaraldri í Lundabóli. Samkvæmt tilmælum frá Menntamálaráðuneyti og Almannavörnum Ríkisins var öllum stofnunum með svokallaða órofna starfssemi s.s.leik- og grunnskólum gert að gera slíka áætlun fyrir 1.september. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. ágú. 2009

Inflúensa

Starfsfólk Lundabóls er á varðbergi gagnvart inflúensunni sem ríður yfir um þessar mundir og fylgist vel með framgangi mála í þeim efnum. Starfsfólk hefur verið upplýst um sóttvarnir og hert hefur verið á hreinlæti innan leikskólans. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. ágú. 2009

Sumri hallar

Nú þegar sumri hallar fer allt að færast í venjubundið horf í leikskólanum á ný. Nær allt starfsfólk er komið úr sumarfríi, börnin eru að týnast inn og ný börn byrjuð í aðlögun. Starfsfólk Lundabóls býður nýju börnin og foreldra þeirra velkomin í hópinn svo og eldri nemendur velkomna til leiks á ný.... [ nánar ]
Mynd með frétt06. júl. 2009

Rækta eigið íþróttanammi (grænmeti)

Líkt og undanfarin ár eru börn og starfsfólk Lundabóls með reit til ræktunar í skólagörðunum og er það hluti af Sumarskipulagi leikskólans. ... [ nánar ]
Mynd með frétt06. júl. 2009

Börnin kveðja

Nú þegar hafa nokkur börn sem hefja nám í grunnskóla í haust lokið leikskólagöngu sinni og kvatt börn og starfsfólk Lundabóls. Sum þeirra færðu leikskólanum góðar gjafir í kveðjuskyni, má þar nefna spil, púsl og kubba.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. jún. 2009

Útskriftarferð

Í síðastliðinni viku fóru elstu börnin í Lundabóli í útskriftaferð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Við vorum afar heppin með veður og fengum mjög fallegan og sólríkan dag. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. jún. 2009

Útskrift væntanlegra grunnskólabarna

Þann 3. Júní voru elstu börn leikskólans útskrifuð formlega úr leikskólanum. Athöfnin fór fram í sal leikskólans að viðstöddum foreldrum barnanna, kennurum og leikskólastjóra. Í upphafi athafnarinnar sungu börnin lagið Gull og perlur.... [ nánar ]
Mynd með frétt04. jún. 2009

Sumarfagnaður Foreldrafélags Lundabóls

Sumarfagnaður Foreldrafélags Lundabóls var haldinn á lóð leikskólans seinnipart dags 3.júní, en Þetta er í fyrsta skipti sem slíkur fagnaður er haldinn á vegum Foreldrafélagsins. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. maí 2009

Sumarhátíð leikskólanna í Garðabæ

Árlega Sumarhátíð leikskólanna í Garðabæ var haldin fimmtudaginn 28. maí. Slæmt veður um morguninn setti strik í reikninginn og var brugðið á það ráð að flytja hátíðina inn í íþróttahúsið Ásgarð.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. maí 2009

Vorferðalag Foreldrafélags Lundabóls

Árlegt vorferðalag Foreldrafélags Lundabóls var miðvikudaginn 20. maí. Lagt var af stað frá Lundabóli kl. 9:00 áleiðis að sveitabænum Grjóteyri í Kjós. Mikil og góð þátttaka var í ferðina og fóru alls 136 manns í þremur rútum, einnig fóru nokkrir á einkabílum. Á Grjóteyri var að vanda vel tekið á móti okkur af þeim hjónum Hildi og Kristjáni.... [ nánar ]
13. maí 2009

Opið hús í Lundabóli

Líkt og undanfarin ár var Opið hús í Lundabóli laugardaginn 9. maí. Þá gafst gestum og gangandi tækifæri á að koma í heimsókn og skoða m.a. afraksturinn af vetrarstarfinu. Margir góðir gestir komu í heimsókn foreldrar, fyrrverandi leikskólabörn, afar, ömmur, systkini, frændur og frænkur.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. maí 2009

Heimsókn í Dýraspítalann í Garðabæ

Í síðastliðinni viku fórum við á Lerkinu í heimsókn á Dýraspítalann í Garðabæ; farið var tvo daga í röð, fyrst með eldri börnin og síðan með þau yngri. ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. maí 2009

Seinni heimsókn í Flataskóla

Þann 27. apríl fóru verðandi nemendur í 1. bekk í seinni skólaheimsókn sína í Flataskóla. Ásamt börnum frá Lundabóli voru einnig leikskólabörn frá Kjarrinu og Bæjarbóli.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. maí 2009

Seinni Heimsókn í Hofsstaðaskóla

Þann 20. apríl fóru verðandi nemendur í seinni skólaheimsókn sína í Hofsstaðaskóla. Daglegu starfi í 1. bekk var fylgt eftir, borðað nesti, farið út í frímínútur o.s.frv.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. apr. 2009

Náttfataball - sumarfagnaður

í morgun mættu börn og starfsfólk í náttfötum í leikskólann, ástæða þess var fyrirhugað náttfataball í tilefni sumarkomu.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. apr. 2009

Krakkakaffi

Ákveðið var að fella niður árlega kaffihúsaferð barna og starfsfólks og hafa þess í stað „heimakaffihús“ þegar færi að vora. Hugmyndin tók breytingum í meðförum og varð að veitingahúsi. ... [ nánar ]

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi