Um Leikskólann
Leikskólinn Lundaból er þriggja deilda leikskóli, þar sem rými er fyrir 71 barn samtímis.Leikskólinn er opinn daglega frá kl. 7:30 - 17:00 og er opinn allt árið.
Leikskólinn hóf starfsemi sem leikskóli 15. október 1992. Áður hafði verið þar gæsluvöllur í sautján ár. Fyrstu tvö árin var stafrækt ein deild með 36 börn. Sumarið 1994 hófust framkvæmdir við nýja deild og var hún tekin í notkun í október sama ár. Í mars mánuði árið 1999 hófust framkvæmdir að nýju og þriðja deildin tekin í notkun í janúar árið 2000. Í Lundabóli eru starfandi þrjár leikskóladeildir Lerkið, Laufið og Lyngið. Þar eru 71 barn samtímis á aldrinum 18 mánaða til 6 ára.